Skákþing Íslands 2012
Þröstur Þórhallsson Skákmeistari Íslands 2012 Úrslitakeppni um titilinn Skákmeistari Íslands Stúkunni við Kópavogsvöll 25.-30.mai
Þröstur Þórhallsson gegn Braga Þorfinnssyni
Útsendingar- og skákstjórar: Gunnar Björnsson og Omar Salama Landsliðsflokkur
Landsliðsflokkur fer að þessu sinni fram í stúkunni við Kópavogsvöll dagana 13.-23.apríl. Icelandair og Kópavogsbær eru aðalstyrktaraðilar mótsins. Landsliðsflokkur Hér að neðan má finna helstu upplýsingar um mótið.
Þátttakendur:
Varamenn í flokkinn eru Ingvar Þór Jóhannesson (2331) og Róbert Harðarson (2315). Meðalstig 2398. Til að ná stórmeistaraáfanga þarf 8,5 vinning í 11 skákum en til að ná áfanga að alþjóðlegum meistaratitli þarf 6,5 vinning. Þess fyrir utan er möguleiki fyrir skákmennina að ná áföngum eftir 9 eða 10 umferðir. Farið er eftir FIDE reglum, nema hvað regla 6.6.a er framfylgt með eftirfarandi hætti: Ef keppandi mætir að skákborðinu seinna en 30 mínútum eftir að umferð hefst þá tapar hann skákinni. Mælt er með snyrtilegum klæðnaði í þessum glæsilega skáksal og standa jakkafötin alltaf fyrir sínu. Dagskrá Umhugsunartími: 90 mín. + 30 sek. á hvern leik. Eftir 40 leiki bætast auk þess við 30 mínútur. Tímahrak fyrir 40 leikja markið lýkur um kl 19:40. 60. leikja skákir enda um kl 21:20 Aðstaða fyrir keppendur til stúderinga eftir skák er á 1.hæð. Þar verður líka aðstaða, skáksett og kaffi fyrir áhorfendur. Stefnt er að daglegum skákskýringum kl c.a. 18:30 - 20:00. Seinkun á beinum útsendingum á netinu verður 30 mínútur. Verðlaun 1. 250.000 Auk þess vinnur Íslandsmeistarinn sér inn sæti í landsliði Íslands og er boðið á EM-einstaklinga. Þrír efstu vinna sér inn þátttökurétt í næsta Landsliðsflokki. Áskorendaflokkur
Guðmundur Kjartansson sigurvegari Áskorendaflokks 2012 Áskorendaflokkur Skákþings Íslands fer fram dagana 30.mars - 8.apríl. Mótið mun fara fram í Faxafeni 12, Reykjavík. Efstu tvö sætin gefa föst sæti í Landsliðsflokki 2012 eða 2013. Dagskrá:
Verðlaun:
Aukaverðlaun:
Aukaverðlaun eru háð því að a.m.k. 5 keppendur séu í hverjum flokki og eingöngu er hægt að vinna til einna aukaverðlauna. Reiknuð verða stig séu fleiri en einn í efsta sæti. Stigaverðlaunin miðast við íslensk skákstig. Þátttökugjöld:
Skráning fer fram á Skák.is. Einnig er hægt að skrá tölvupósti á skaksamband@skaksamband.is eða tilkynna í síma 568 9141 virka daga kl. 10-13. |
||||||||||||||||||||||||||||||








