Skákþing Íslands 2006
Einnig mun verða fylgst mikið með hinum danskættaða stórmeistara, Henrik Danielsen, sem nú hefur hlotið íslenskan ríkisborgararétt, en þetta er í fyrsta sinn sem Henrik keppir um Íslandsmeistaratitilinn. Þá þykir stórmeistarinn Þröstur Þórhallsson og alþjóðlegu meistararnir Stefán Kristjánsson og Héðinn Steingrímsson líklegir til stórræða á mótinu og ljóst að keppnin verður bæði jöfn og tvísýn. Héðinn Steingrímsson hefur ekki teflt á Skákþingi Íslands í mörg ár, en hann vann það afrek árið 1990 að verða Íslandsmeistari aðeins 15 ára gamall og hefur enginn leikið það eftir. Þá munu alþjóðameistararnir Jón Viktor Gunnarsson, Arnar Gunnarsson og Bragi Þorfinnsson varla láta þeim Stefáni og Héðni einum eftir að reyna að nálgast bæði stórmeistaraárangur og Íslandsmeistaratitilinn. Athygli vekur að Guðlaug Þorsteinsdóttir Íslandsmeistari kvenna er á meðal keppenda, en þátttaka hennar er sérlega ánægjuleg í ljósi þess að þetta er einungis í annað sinn sem kona keppir í landsliðsflokki Skákþings Íslands í meira en 90 ára sögu mótsins. Aðrir keppendur sem hefja baráttuna um Íslandsmeistaratitilinn á sunnudag eru Fide-meistararnir Snorri G. Bergsson, Sigurbjörn Björnsson og Tómas Björnsson, Unglingameistari Íslands Mótið verður með útsláttar- og einvígjafyrirkomulagi. Teflt verður tveggja skáka einvígi í hverri umferð og sigurvegari hverrar umferðar kemst áfram í næstu umferð en aðrir detta út. Ef jafnt er eftir 2 kappskákir verða tefldar 2 atskákir og ef jafnt er eftir atskákirnar verða tefldar 2 hraðskákir. Ef enn er jafnt eftir hraðskákirnar fer fram bráðabani. Þar eð mótið er með einvígja- og útsláttarfyrirkomulagi er ljóst að jafntefli duga lítið og skákmeistararnir verða að láta sverfa til stáls í hverri skák. Tímamörk: 1 klst. og 40 mín + 30 sek. á leik fyrstu 40 leikina, 30 mín. + 30 sek. á leik til að ljúka. Verðlaun: 1. verðlaun kr. 200.000.- Pörun: Fyrir fyrstu umferð er keppendum skipt í tvo hópa (nr. 1-8 og nr. 9-16 skv. stigum); keppendur úr fyrri hóp dragast á móti keppendum í seinni hóp. Að 1. umferð lokinni verður dregið með sama hætti fyrir 2. umferð þ.e. keppendum er skipt í tvo hópa eftir stigum (nr. 1-4 og 5-8), og að 2. umferð lokinni verður dregið með sama hætti fyrir 3. umferð. Dagskrá landsliðsflokks: Teflt er í Skákheimilinu Faxafeni 12, kl. 14.00 um helgar og kl. 17.00 á virkum dögum. Skákskýringar byrja 2 klst. eftir að umferð hefst.
Eftirtaldir skákmeistarar eigast við í fyrstu skák fyrstu umferðar: 1. Snorri G. Bergsson (hvítt í fyrstu) - Hannes Hlífar Stefánsson
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||


