Íslandsmótið í netskák

Taflfélagið HellirÍslendingar voru að sjálfsögðu fyrstir til að halda landsmót í netskák, þrátt fyrir tilraunir ýmsra annarra til að halda öðru fram. Það voru Gunnar Björnsson og Hellismenn, sem riðu á vaðið og héldu mótið á dönskum netþjóni árið 1996. Síðar færðist mótið yfir á ICC (Internet Chess Club). Þráinn Vigfússon varð fyrsti Íslandsmeistarinn í netskák.

Hellismenn hafa haldið mótið alla tíð og gert það með sóma. Um tíma var mótið lokapunktur á hinni bráðskemmtilegu Bikarsyrpu Hellis á ICC.

Núverandi Íslandsmeistari í netskák er Arnar E. Gunnarsson, en hann hefur jafnframt unnið oftast allra, eða fjórum sinnum. Aðeins tveir skákmenn hafa tekið þátt í öllum mótunum, Gunnar Björnsson og Hrannar Baldursson.

Íslandsmeistarar í netskák
(tekið af heimasíðu Hellis)

  • 1996: Þráinn Vigfússon
  • 1997: Benedikt Jónasson
  • 1998: Róbert Harðarson
  • 1999: Davíð Kjartansson
  • 2000: Stefán Kristjánsson
  • 2001: Helgi Áss Grétarsson
  • 2002: Arnar E. Gunnarsson
  • 2003: Arnar E. Gunnarsson
  • 2004: Stefán Kristjánsson
  • 2005: Arnar E. Gunnarsson
  • 2006: Snorri G. Bergsson (Omar Salama)
  • 2007: Stefán Kristjánsson
  • 2008: Arnar E. Gunnarsson
  • miđvikudagur 8 september 09 2010
    Nýjustu fréttir
    Reykjavíkurskákmótiđ...
    Nú eru línur farnar að skýrast með...
    Ólympíulandsliđ...
    Helgi Ólafsson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt stjórn SÍ...
    Lenka...
    Lenka Ptácníková varð Íslandsmeistari kvenna í skák...